#16 | Greifarnir og síðasta sveitaballið
Árið 2026 voru 40 ár síðan hljómsveitin Greifarnir sigraði Músíktilraunir og varð á skömmum tíma ein vinsælasta hljómsveit landsins. Stuttu síðar kom lagið Útihátíð út og varð allra vinsælasta lagið á Íslandi það sumar. Greifarnir ferðast nú um landið á tónleikaferðalagi eða sveitaballaferðalagi sem þeir kalla Síðasta sveitaballið.
Í þessum þætti tala þeir um hvernig sveitaballa- og tónlistarbransinn hefur breyst á síðustu 40 árum, sigurinn í Músíktilraunum 1986 og hvernig hann breytti lífi þeirra á skömmum tíma, fyrstu árin, mikla spilamennsku, kostnaðinn við frægðina, áhrif hennar á fjölskyldu- og einkalíf, vinsælustu lög sveitarinnar, endurkomuna árið 1995, um pressuna sem fylgdi vinsældunum og framtíð Greifanna eftir þetta sumar.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
Fleiri þættir af Popparasögur
- #33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)6. október 2026
- #32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)6. október 2026
- #31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár29. september 2026
- #30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum22. september 2026
- #29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa15. september 2026
- #28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)8. september 2026






