#18 | Einar Björnsson og 40 ára ferðalag um íslenskan tónlistarbransa, frá sveitaböllum til Kótelettunnar
Einar Björnsson hefur verið viðloðinn íslenskt tónlistarlíf í næstum 40 ár og óhætt að segja að hann hafi unnið með flestu, ef ekki öllu, vinsælasta tónlistarfólki landsins á þessum tíma. Hann var aðeins 17 ára gamall þegar Björgvin Halldórsson heitinn gaf honum tækifæri sem hljóðmaður og þar með var leið hans í lífinu ákveðin.
Síðan þá hefur hann stýrt hljóði fyrir flestar af stærstu hljómsveitum Íslands, séð um tæknimál á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í rúman aldarfjórðung, átt hljóðkerfaleigu, skemmtistað, útvarpsstöð og nú síðast setti hann af stað tónlistar- og matarhátíðina Kótelettuna á Selfossi sem er orðin ein best sótta tónlistarhátíð landsins á hverju ári.
Einar ræðir hér áratugalanga reynslu sína úr íslenska tónlistarbransanum, gullöld sveitaballanna, og hvernig bransinn hefur breyst með nýjum tíma, breyttum venjum og stærri viðburðum. Hann fer yfir tíma sinn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og segir frá stofnun Kótilettunnar á Selfossi og hvernig fyrsta hátíðin varð til á aðeins 11 dögum.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
Fleiri þættir af Popparasögur
- #33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)6. október 2026
- #32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)6. október 2026
- #31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár29. september 2026
- #30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum22. september 2026
- #29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa15. september 2026
- #28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)8. september 2026






