#21 | Ágúst Þór Brynjarsson og undirbúningurinn fyrir Brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum
Einn maður, einn gítar og þúsundir radda sem sameinast á Brekkunni á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Á yfirborðinu virðist Brekkusöngurinn einfaldur en á bak við þessa einu klukkustund á sviðinu liggja margir mánuðir af undirbúningi, greiningu og vinnu.
Fyrir Ágúst Þór Brynjarsson, sem mun stýra sínum fyrsta Brekkusöng á Þjóðhátíð í sumar, er þetta ekki aðeins stærsta svið sem íslenskur tónlistarmaður getur stigið á, heldur afrakstur margra ára markvissrar vinnu. Frá fyrstu trúbadoragiggunum á Norðurlandi, Söngvakeppninni og tímanum með Færibandinu og Stuðlabandinu hefur hvert skref verið undirbúningur fyrir þessa klukkustund í Eyjum.
En fæstir átta sig á vinnunni sem liggur að baki, greiningu á eldri Brekkusöngvum, endalausum æfingum, lagavalinu og fleiru.
Í þessu viðtali ræðir Ágúst Þór um ferðalagið að Brekkusöngnum, hvernig hann undirbýr sig fyrir stærsta verkefni ferilsins, lærdóminn sem hann dró af Stuðlabandinu, þegar hann grét í langan tíma eftir Söngvakeppnina og hvers virði það er að taka af skarið.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
Fleiri þættir af Popparasögur
- #33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)6. október 2026
- #32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)6. október 2026
- #31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár29. september 2026
- #30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum22. september 2026
- #29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa15. september 2026
- #28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)8. september 2026






