#22 | Einar Bárðarson og pælingar með verslunarmannahelgina 2026
Nú er verslunarmannahelgin 2026 framundan og er vel hægt að færa rök fyrir því að sjaldan eða aldrei hafi verið jafn mikið í boði fyrir fólk sem vill njóta íslenskrar tónlistar þessa helgi.
Sem fyrr eru fastir liðir á sínum stað, eins og Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, en nú virðist meira hafa verið lagt í aðrar hátíðir, sérstaklega hvað varðar tónlistardagskrá, og er Ein með öllu á Akureyri besta dæmið um það.
Í þennan þátt mætir maður sem þekkir íslenskan tónlistarbransa mjög vel. Hann fer hér aðeins yfir þessa helgi, stöðuna á tónlistarviðburðum á Íslandi miðað við áður og hvernig þessi helgi, sem býður upp á flesta íslenska tónlistarviðburði, hefur þróast undanfarin ár.
Maðurinn er Einar Bárðarson og fór spjallið fram í sveitasælu á Suðurlandi rétt fyrir þessa miklu tónlistarhelgi til þess að spá í spilin.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
Fleiri þættir af Popparasögur
- #33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)6. október 2026
- #32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)6. október 2026
- #31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár29. september 2026
- #30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum22. september 2026
- #29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa15. september 2026
- #28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)8. september 2026






