#23 | Birgir Nielsen og trommurnar sem tóku hann alla leið á toppinn
Trommuleikarinn Birgir Nielsen hefur átt langan og viðburðaríkan feril. Hljómsveitirnar hans eru til dæmis fjölmargar og má þar nefna Vini Vors og Blóma, Sælgætisgerðina, Land og syni, Klaufana og nú síðast Gosana frá Vestmannaeyjum.
Hér á eftir fer Birgir yfir ferilinn, allt frá því að hann byrjaði að spila á trommur í Breiðholtinu, yfir í velgengnina með Vinum vors og blóma, óvænta innkomu í Land og syni og öll ævintýrin með þeim bæði hérlendis og erlendis og sunnudagskvöldin með Sælgætisgerðinni.
Hann segir frá þjóðhátíðarlögunum, kántríævintýrinu með Klaufunum og ferðunum til Nashville, sólóverkefnunum sínum, tónlistarlífinu í Vestmannaeyjum, hvalahljóðum, Hljómey, Gosunum og hvað það er sem fær hann til að halda áfram að spila og skapa tónlist.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
Fleiri þættir af Popparasögur
- #33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)6. október 2026
- #32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)6. október 2026
- #31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár29. september 2026
- #30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum22. september 2026
- #29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa15. september 2026
- #28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)8. september 2026






