#24 | Birgir Örn Steinarsson og allt um hljómsveitina Maus (fyrri hluti)
Birgir Örn Steinarsson, BiggiMaus, hefur lengi verið hluti af íslensku tónlistarlífi. Hann stofnaði hljómsveitina Maus sem ungur maður og fór með vinum sínum í gegnum Músíktilraunir, plötuútgáfur, tónleika og tilraunir erlendis. Hann fór líka í gegnum tímabil þar sem allt virtist ganga upp og svo önnur þar sem hljómsveitin og ferillinn voru nálægt því að gliðna í sundur.
Í þessum fyrri hluta viðtalsins ræðir Biggi um feril hljómsveitarinnar Maus, pönkið sem hefur fylgt honum alla tíð, upphafið, allar plöturnar, vinsælustu lögin, pressuna sem fylgdi velgengninni, þegar þeir ákváðu að slíta samstarfi um sinn og þegar hann loks sagði upp vinnunni sinni og ákvað að hverfa til London.
Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
Fleiri þættir af Popparasögur
- #33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)6. október 2026
- #32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)6. október 2026
- #31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár29. september 2026
- #30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum22. september 2026
- #29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa15. september 2026
- #28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)8. september 2026






