#26 | Eyjólfur Kristjánsson og sannleikurinn um Nínu og Álfheiði Björk
Eyjólfur Kristjánsson hefur verið gríðarlega áberandi í íslensku tónlistarlífi í rúm fjörutíu ár. Hann er söngvari, gítarleikari, píanóleikari, laga- og textahöfundur og maðurinn á bak við nokkur af þekktustu lögum íslenskrar poppsögu.
Hann steig sín fyrstu skref á sviði sem fjórtán ára strákur í Kerlingarfjöllum, fór síðan í vísnabransann með Hálft í hvoru og varð síðar einn af liðsmönnum Bítlavinafélagsins. Eftir það fór allt á fullt með sveitaböllum um allt land, metsöluplötum og lögum sem urðu stórir smellir.
Hér á eftir talar hann um Hálft í hvoru, Bítlavinafélagið, sólóferilinn og samstarfið og vináttu við Stefán Hilmarsson, Björn Jörund, Björgvin Halldórsson og fleiri.
Hann segir frá Söngvakeppni sjónvarps og Eurovision-ferðum sínum, þar á meðal ótrulegu kvöldi með Mel Gibson í Dublin. Hann rifjar upp hvernig lög eins og „Ég lifi í draumi“, „Nína“ og „Álfheiður Björk“ urðu til. Hann segir líka frá því sem hefur gengið á undanfarna áratugi í tónlistarbransanum, nýju plötunni og því hvað það er sem heldur honum enn gangandi eftir öll þessi ár í tónlistinni.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
Fleiri þættir af Popparasögur
- #33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)6. október 2026
- #32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)6. október 2026
- #31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár29. september 2026
- #30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum22. september 2026
- #29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa15. september 2026
- #28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)8. september 2026






