Synir Egils 25. okt - Mótmæli, átök, fylgi og fall
Sunnudagurinn 25. október
Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall
Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Andrea Sigurðardóttir blaðakona, Rakel Þorbergsdóttir samskiptaráðgjafi og fyrrum fréttastjóri Ríkisútvarpsins og Róbert Marshall fjallamaður, fyrrum þing- og blaðamaður og ræða átök í Evrópu og innan flokka á Íslandi, niðurskurð hjá Borginni, umdeildan sýknudóm í kynferðisbrotamáli, fylgi flokka og margt fleira. Að því loknu ræðum við mótmælin í Evrópu við þau Eirík Bergmann prófessor í stjórnmálafræði, Gígju Söru Björnsson, sem er sviðshöfundur og íslensk-frönsk, Morgane Priet-Mahéo straumfræðingur og Ara Orrason formann UngVG. Hverjir mótmæla hverju? Er ungt fólk í Evrópu að hafna stefnu yfirvalda? Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Rauða borðið 29. okt - Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir29. október 2026
- Rauða borðið 28. okt - Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs28. október 2026
- Þriðjudagur 27. október - Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin27. október 2026
- Rauða borðið 26 okt - Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn26. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Bárðar24. október 2026
- Föstudagur 23. október Vikuskammtur: Vika 4323. október 2026






