Rauða borðið 29. okt - Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir
Fimmtudagur 29. október
Reynsluboltar, heimsmál, heimsveldi, vók, Mímir og takkarnir
Kári Jónsson, Sirrý Arnardóttir og Álfheiður Ingadóttir eru reynsluboltarnir sem ræða við Sigurjón Magnús þessa vikuna, um fréttir og stöðu samfélagsins. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um símtal Støre og Stubb til Pútín, Úkraínu, smáríki og norðurslóðir. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, ræðir við Björn Þorláks um nýja bók sem fjallar um hryðjuverk, efnahagshrun og endalok heimsveldis. Valur blandar heimssögu sína persónulegum frásögnum. Lýðskrum í íslenskum miðlum - innreið woke frá 1917 er heiti á erindi sem Lars Lundsten fræðimaður flytur á Þjóðarspegli á morgun. Björn Þorláks ræðir við hann um þá sem veifuðu vók-trénu oftast. Mímir Kristjánsson er hálfur Íslendingur á norska þinginu, rithöfundur, blaðamaður og sósíalisti. Hann talar við Gunnar Smára um vinstrið á Norðurlöndum, ysta hægrið og mótmæli í Evrópu. Sigríður Björk Þormar sálfræðingur, hjúkrunarfræðingur og doktor í heilbrigðisvísindum ræðir við Ásdísi Olsen um hvernig annað fólk getur stjórnað líðan okkar, magnað upp reiði, sorg og höfnun langt umfram sýnilegt tilefni, ýtt á takka sem kveikja á okkur.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Rauða borðið 28. okt - Naza, heimahagkerfið, sprútt, enfants terrible, Pár Guðs28. október 2026
- Þriðjudagur 27. október - Fjöldauppsagnir, fangelsi, landbrot, heilbrigðiskerfið, ástin og samhygðin27. október 2026
- Rauða borðið 26 okt - Trump, rasismi, Landsréttur, Serbía, Brasilía, stjörnuspeki og Steinunn26. október 2026
- Synir Egils 25. okt - Mótmæli, átök, fylgi og fall25. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Bárðar24. október 2026
- Föstudagur 23. október Vikuskammtur: Vika 4323. október 2026






