Rauða borðið 16. nóv - Framsókn, yfirheyrsla, dánaraðstoð, hagspá og hernám

· Fréttir

Mánudagur 16. nóvember
Framsókn, yfirheyrsla, dánaraðstoð, hagspá og hernám

Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins er gestur Sigurjóns. Þau ræða um stjórnmál dagsins. Um Framsóknarflokkinn og eins gagnrýni hans á núverandi ríkisstjórn. Formaður Bændasamtakanna, Trausti Hjálmarsson, hefur verið gagnrýndur harðlega síðustu daga vegna ummæla hans og afstöðu til Stjörnugríss. Hafa margir sakað hann um að verja dýraníð. Björn Þorláks yfirheyrir formanninn. Skiptar skoðanir eru um dánaraðstoð hér á landi en mikill meirihluti landsmanna vill heimila hana að sögn Ingrid Kuhlman sem berst fyrir lögleiðingu. Um viðkvæmt mál er að ræða sem á sér margar hliðar. Björn Þorláks ræðir við Ingrid. Hagfræðingarnir Erna Björg Sverrisdóttir hjá Arion og Una Jónsdóttir hjá Landsbanka ræða við Gunnar Smára um efnahagshorfur, vexti, verðbólgu og stöðu atvinnulífsins. Leifur Reynisson sagnfræðingur hefur skrifað bók um hernámsárin byggða á heimildum en ekki síður munnlegum frásögnum fólks sem þá voru börn. Gunnar Smári ræðir við Leif.

Rauða borðið

Úr hlaðvarpinu

Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Rauða borðið