Rauða borðið 17. nóv - Húsnæðiskrísa, dýravelferð, ADHD, stjúptengsl, Grettla og tónlist

· Fréttir

Þriðjudagur 17. nóvember
Húsnæðiskrísa, dýravelferð, ADHD, stjúptengsl, Grettla og tónlist

Fasteignamarkaðurinn er helfrosinn, bankar eru farnir að kaupa óseldar íbúðir af verktökum og merki um örþrifaráð í bransanum. Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir við Björn Þorláks. Rósa Líf Darradóttir læknir og formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi ræðir blóðmerarald í samtali við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við Hrannar Björn Arnarson um ADHD. Valgerður Halldórsdóttir ræðir við Ásdísi Olsen um stjúptengsl. Torfi Túliníus og Guðvarður Már Gunnlaugsson fræðimenn ræða við Björn Þorláks vegna málþings um Grettis sögu. Furðu margt í sögunni kallast á við samtímann. Páll Guðmundsson, kenndur við Húsafell, og Hilmar Örn kórstjórnandi ræða sérstakan tónlistarviðburð á morgun þar sem leikið verður á framandi hljóðfæri. Björn Þorláks ræðir við þá félaga.

Rauða borðið

Úr hlaðvarpinu

Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Rauða borðið