Rauða borðið 16. mars - Alræði, mið-austurlönd, geðveiki, systkinaofbeldi og Laufey

· Fréttir, Menning & listir

Mánudagur 16. mars
Alræði, mið-austurlönd, geðveiki, systkinaofbeldi og Laufey

Alræðistaktar stjórnvalda í Bandaríkjunum verða til umræðu þegar Valur Gunnarsson sagnfræðingur ræðir við Björn Þorláks um ástandið í heimsmálunum í sögulegu tilliti. Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Mála- og menningardeild HÍ og sérfræðingur í mið-austurlöndum, fer yfir stöðuna fyrir botni miðjarðarhafs. Laufey Líndal ræðir við Þóri. Flosi Þorgeirsson sagnfræðingur og tónlistarmaður spjallar við Björn Þorláks um andleg mál, þunglyndi og upprisu. Þórdís Bjarnleifsdóttir lauk nýlega meistaraverkefni í félagsráðgjöf við HÍ en þar vann hún rannsókn um systkinaofbeldi, mál sem hefur ekki mikið verið rannsakað á Íslandi og fá úrræði í boði þegar slík mál koma á borð barnaverndar. Þórdís segir Laufeyju Líndal frá rannsókn sinni og hvaða skref þurfi að stíga til að tryggja börnum og foreldrum aðstoð þegar þessi mál koma upp. Andrea Jónsdóttir fer yfir stórbrotna tónleika Laufeyjar um helgina í spjalli við Björn Þorláks.

Samstöðin

Úr hlaðvarpinu

Samstöðin

Samstöðin

Allir þættir

Fleiri þættir af Samstöðin