Rauða borðið 10. mars - ESB, Icelandair, stjórnmálasaga, framtíðin og andlegt líf

· Fréttir, Menning & listir

Þriðjudagur 10. mars
ESB, Icelandair, stjórnmálasaga, framtíðin og andlegt líf

Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, efast ekki um að í efnahagslegu tilliti gæti verið eftir miklu að slægjast fyrir Ísland að ganga í ESB. Þórður Snær ræðir við Björn Þorláks. Doktor Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur ræðir í spjalli við Björn Þorláks þátt hins opinbera í þjóðaröryggismálum og einkum í millilandaflugi Íslendinga vegna veikrar stöðu Icelandair. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræðir umræðuhefð stjórnmálamanna í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst sem og sögulegan fróðleik. María Lilja spaír í framtíðina og eru viðmælendur hennar Urður Vala og Tíbrá Myrra Freysdætur. Áhugi á trúmálum virðist fara ört vaxandi og prestar sjá breytingar í kirkjustarfi. Séra Sveinn Valgeirsson dómkirkjuprestur reynir að greina orsakir breytinganna í samtali við Björn Þorláks.

Samstöðin

Úr hlaðvarpinu

Samstöðin

Samstöðin

Allir þættir

Fleiri þættir af Samstöðin