Rauða borðið 4. mars - Áföll, heilsugæslan, barnavernd, góðvild og andóf
Miðvikudagur 4. mars
Áföll, heilsugæslan, barnavernd, góðvild og andóf
Flosi Þorgeirsson tónlistarmaður og sagnfræðingur í Draugum fortíðar ræðir við Björn Þorláks um kvíða og kulnun, raðáföll í æsku og listina að lifa af. Nýtt verk, Heilsugæslan, verður frumflutt á næstu dögum. Lýður Árnason læknir leikstjóri og höfundur verksins, Rakel Björk Björnsdóttir og Elfar Logi Hannesson leikarar ræða stykkið í spjalli við Björn Þorláks. Unnar Þór Sæmundsson var vistaður á Bakkakoti við slæm skilyrði. Hann vill brenna barnaverndarkerfið og byrja upp á nýtt, ssegir hann í samtali við Sigurjón Magnús.Eiður Ragnarsson Austfirðingur segir sögu úr hversdagslífinu sem kannski vísar út fyrir sig. Hann skaut skjólshúsi yfir ókunnan ferðalang og komst að því að heimurinn er ekki að fara til fjandans. Björn Þorláks ræðir við Eið. Julia Mai myndlistarkona og Ari Logn, talsmanneskja Rauðu regnhlífarinnar ræða list og annars konar andóf í samtali við Maríu Lilju.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






