Rauða borðið 23. feb - Virkir í athugasemdum, íslenskan, Mamma, hamfaratónlist og umhverfismál
Mánudagur 23. febrúar
Virkir í athugasemdum, íslenskan, Mamma, hamfaratónlist og umhverfismál
Einar Steingrímsson, stærðfræðingur og virkur í athugasemdum ræðir við Maríu Lilju um mann -og kvenréttindi og umræðuhefðina á netinu. Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla blandar sér í leik þeirra sem vilja ræða stöðu íslenskunnar í samtali við Björn Þorláks. Kolbeinn Þorsteinsson rifjar upp erfiða æsku í samtali við Sigurjón Magnús. Hann er sonur Ástu Sigurðardóttur og Þorsteins frá Hamri. Sönghópurinn Spectrum syngur um snjóflóð, aurskriður og eldgos. Þau Helga Margrét Marzellíusardóttir tónskáld, Ingveldur Ýr Jónsdóttir kórstjóri, Ólafur Stephensen tenór og Margrét Pálsdóttir ræða við Björn Þorláks. Þröstur Ólafsson er sannur umhverfissinni. Hann spyr áleitinna spurninga í samtali við Sigurjón Magnús.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






