Græna borðið - 1. þáttur: Er náttúran munaðarlaus málstaður?
Miðvikudagur 11. febrúar
Græna borðið: Er náttúran munaðarlaus málstaður?
Græna borðið er vettvangur umræðu um náttúruvernd og umhverfismál. Hópurinn sem stendur að baki þættinum telur að núverandi stjórnvöld sinni umhverfismálum og náttúruvernd lítið eða ekkert og fari beinlínis á svig við vilja kjósenda í stórum málum.
Í fyrsta þættinum undir stjórn Páls Ásgeirs Ásgeirssonar var rætt um stöðu náttúruverndar í víðu samhengi. Þáttakendur voru: Tryggvi Felixsson hagfræðingur og leiðsögumaður og þekktur baráttumaður á sviði umhverfisverndar.
Jón Kaldal hefur mjög látið til sín taka í þessari umræðu, sérstaklega í baráttu gegn laxeldi í sjókvíum við Ísland.
Rósa Björg Brynjólfsdóttir sat lengi á Alþingi fyrir Vinstri-græna. Hún hefur lengi tekið þátt í náttúruvendarbaráttu í ýmsum myndum og starfar enn fyrir Vinstri-græna.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






