Rauða borðið 9. feb - Afsögn Ástu Lóu, oddvitar, kjarasamningar, Bakkakot og Starmer
Mánudagur 9. febrúar
Afsögn Ástu Lóu, oddvitar, kjarasamningar, Bakkakot og Starmer
Ásta Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins og fyrrum ráðherra gerir upp í samtali við Björn Þorláks dagana áður en hún lét af embætti. Hún segir að starfsfólk ráðuneytis hennar hafi aldrei mætt öðrum eins ágangi og vilja fjölmiðlafólks til að þefa uppi hneyksli. Pétur H. Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í borginni og Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti ónefnds vinstra framboðs ræða borgarmálin við Gunnar Smára; hugmyndabaráttuna, stéttaskiptingu, húsnæðismálin, leikskóla, borgarlínu og fleira. Finnbjörn Hermannsson, forseti ASí, settist niður með Sigurjóni Magnúsi og sagði frá þeirri ógnarlegu stöðu sem virðist vera að teiknast upp, að launasamningum verði sagt upp. Salvör Nordal, umboðsmaður barna, ræðir við Sigurjón Magnús um Bakkakotsmálið og Guðmundur Auðunsson hagfræðingur og fréttaritari Samstöðvarinnar í London ræðir við Gunnar Smára um áhrif Epstein-skjalanna á stöðu Keir Starmer.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






