Rauða borðið 28. maí: Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind
Miðvikudagur 28. maí
Oscar, hamingja barna, Gaza, Rússland, blaðamennska og gervigreind
Haraldur Þorleifsson frumkvöðull og tónlistarmaður, Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur í Reynivallaprestakalli, Bjarni Karlsson, prestur og guðfræðingur hjá sálgæslu- og sálfræðistofunni Haf, ræða við Gunnar Smára um mál Oscars Anders Florez Bocanegra, 17 ára drengs frá Kólumbíu. Og um hlutverk borgara þegar stjórnvöld brjóta gegn siðferðiskennd þeirra. Inger Erla Thomsen, sérfræðingur í málsvarastarfi UNICEF á Íslandi og Eva Bjarnadóttir, teymisstjóri innanlandsdeildar UNICEF ræða lífshamingju barna við Maríu Lilju. Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um stuðning stjórnvalda í Evrópu við þjóðarmorðið í Gaza og hvort von sé til þess að almenningi takist að breyta þeirri afstöðu. Natasha S. ljóðskáld ræðir um Rússland við Gunnar Smára, vanda þess að vera Rússi á Íslandi og hvernig það er að koma til móðurlandsins í skugga innrásar Pútins í Úkraínu. Blaðamannafélagið kynnti á félagsfundi í gærkvöld nýjar lausnir er varða framtíð fjölmiðla og blaðamennsku. Meðal hugmynda er að tekjur af auglýsingasölu Rúv renni til einkarekinna miðla. Ritstjórnarfulltrúar Samstöðvarinnar, þeir Gunnar Smári Egilsson og Björn Þorláks, ræða hvort lausnirnar séu raunhæfar. Björgmundur Örn Guðmundsson, ráðgjafi í nýsköpun ræðir femínskan vinkil á innleiðingu gervigreindar á vinnumarkaði við Maríu Lilju.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






