Rauða borðið 25. feb - Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og landbúnaður
Þriðjudagur 25. febrúar
Lögregluofbeldi, þýsk stjórnmál, kvikmynd um flóttafólk og íslenskur landbúnaður
Daníel Thor Bjarnason, Pétur Eggerz, mótmælendur og Oddur Ástráðsson lögmaður ræða við okkur um Mótmælin í skuggasundinu, afleiðingar þess og málaferlin við ríkið. Við spyrjum almenning og heyrum skoðanir fólks á valdbeitingu lögreglumanna. Halldór Guðmundsson bókaútgefandi með meiru rýnir í úrslit kosninganna í Þýskalandi. Hann segir uppgang fasisma mikið áhyggjuefni og ræðir nýja stöðu Íslands í alþjóðlegu tilliti í varnarmálum. Anastasia Bortuali og Helgi Felixsson kvikmyndagerðarfólk segja okkur frá heimildamyndinni Temporary Shelter sem frumsýnd var í gær. Anastasia er flóttakona frá Úkraínu og vill með myndinni byggja brú milli tveggja heima; flóttafólks og innfæddra. Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá Mjólkursamsölunni, ræðir landbúnað, stóra ostatollamálið, ESB og stöðu bænda hér á landi nú um stundir. Hún segir að þungt hljóð hafi verið hjá bændum sem fjölmenntu á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í síðustu viku.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






