Rauða borðið 26. nóv - Kosningar, ungir norðlenskir sósíalistar, Sanna, Díegó, Kúba og Perú
Þriðjudagur 26. nóvember
Kosningar, ungir norðlenskir sósíalistar, Sanna, Díegó, Kúba og Perú
Við byrjum á beinni útsendingu, þau Birgitta Jónsdóttir, Marínó G. Njálsson, Kristín Erna Arnardóttir og Einar Már Guðmundsson hefja leik og ræða stjórnmálin og samfélagið með Birni Þorláks. Þá heyrum við í pólitískum ungliðum fyrir norðan. Rætt verður við Ara Orrason sem skiptar 2. sætið í Norðausturkjördæmi hjá sósíalistum og Elvar Fossdal í 15. sæti listans. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa sem samkvæmt könnunum gæti orðið þingmaður sósíalista. Kötturinn Diegó verður til umræðu, en fulltrúi Dýrfinnu kemur og segir frá björgun hans. Elba Núnez Altuna kemur ræðir pólitíkina í Perú. Og við endum dagskrána á vináttufélags Íslands og Kúbu, en Eyjólfur Eyvindsson og Niuvis Sago SuZeta fóru nýlega utan á vegum félagsins. Þau ræða hindranir Kúbana, kúgun vestursins og mikilvægi þess að eiga sér samfélag.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






