Rauða borðið 6. maí - Kjarasamningar, strandeldi, skólar, mengun, viðsnúningur og bekkurinn
Miðvikudagur 6. maí
Kjarasamningar, strandeldi, skólar, mengun, viðsnúningur og bekkurinn
Gunnar Smári ræðir við Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra um kjarasamningana, verðlagsákvæði þeirra og hvað ríkisstjórnin getur gert svo samningunum verði ekki sagt upp í haust. Katrín Oddsdóttir lögmaður og náttúrusinni mætti til Sigurjóns. Saman töluðu um skuggahliðar laxeldis í sjó. Bæði hér heima sem og í Noregi. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins ræðir við Gunnar Smára um það samfélagslega stórhrun sem Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra boðaði ef skólastefnunni yrði ekki umbylt. Andrjes Guðmundsson formaður Lungnasamtakanna ræðir það sem gleymist að mestu leyti að ræða fyrir sveitarstjórnarkosningarnar; pólitískar bráðaaðgerðir sem varða loftgæði og svifryk. Umhverfismálin ættu að vera framar í samgönguumræðunni. Björn Þorláks ræðir við hann. Sturlaugur Sturlaugsson mannvinur og forvígismaður á Akranesi breytti um stefnu í lífinu eftir 50 ára stjórnunarstörf í sjávarútvegi og tók við stöðu forstöðumanns Fjölsmiðjunnar. Hann vill að Ísland verði boðberi friðar og að stofnað verði friðarráðuneyti. Búið er að leika fimm umferðir í efstu deild karla. KR-ingar hafa slegið í gegn. Unnið alla sína leiki og skorað grimmt. Víðir Sigurðsson mætti í viðtal um Íslandsmótið. Hann segir að stuðið á KR-ingum sé með því besta sem sést hefur í byrjun móts í áratugi.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






