Rauða borðið 11. maí - Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð
Mánudagur 11. maí
Bandaríkin, ungliðar, sjávarútvegsstefna ESB, sorg og sérframboð
Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor í Brown-háskóla ræðir við Gunnar Smára um Bandaríki Trump, framtíð Nató, varnarsamninginn og fleira. Þrír formenn pólitískra ungliðahreyfinga ræða hlutskipti ungs fólks og um hvað verður kosið á laugardaginn. Þeir Illugi Gunnarsson, Vinstrinu 18 ára gamall, Halldór Ísak Ólafsson 26 ára sósíalisti og Jóhannes Óli, 22ja ára í Samfylkingunni, leggja spilin á borðið með Birni Þorláks. Úlfar Hauksson sjómaður og aðjúnkt í stjórnmálafræði, ræðir við Gunnar Smára um ESB og sjávarútveg. Það fylgir því sársauki að elska af öllu hjarta, segir Anna Ingólfsdóttir sem upplifði stórfenglegar tilfinningar þegar hún missti manninn sinn. Hún ræðir við Ásdísi Olsen. Þórhallur Jónsson sem klauf sig út úr Sjálfstæðisflokknum á Akureyri og stofnaði sérframboð ræðir við Björn Þorláks um hvernig það er að standa einn og utan hins gamla valdaflokks.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






