Rauða borðið 26. maí - Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja
Þriðjudagur 26. maí
Náttúruhamfarir, dýrtíð, einhverfa og hamingja
Margt bendir til að eldgosahrinunni sé lokið á Reykjanesi og að besta sviðsmynd allra möguleika verði ofan á. Öryggi og nægur jarðvarmi. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur ræðir við Björn Þorláksson. Dýrtíð innanlands er í hæstu hæðum. Framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, ræðir í samtali við Björn Þorláks hvaða breyting yrði á samkeppni með aðild að ESB. Gunnar Smári ræðir við Vigdísi M. Jónsdóttur sálfræðing á Sálfræðistöðinni Höfðabakka um einhverfar konur og hvers vegna þær fela svo vel einhverfu sína. Og svo ræða þau svokallaða fúla karla, eldri menn sem lifa einangruðu lífi og verða einmana. Hrefna Guðmundsdóttir vinnu-og félagssálfræðingur ræðir hamingjuna á þriðja æviskeiði við Ásdísi Olsen.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






