Rauða borðið 2. júní - Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn
Þriðjudagur 2. júní
Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn
Páll Valsson rithöfundur og ævisagnaritari Jónasar Hallgrímssonar skýrir fyrir Birni Þorláks hvers vegna hann telur það góða hugmynd að grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar. Hugmyndin hefur vakið deilur meðal fræðimanna. Aðalheiður Sigursveinsdóttir stjórnunarráðgjafi og listakona varð fyrir alvarlegum áhrifum af svartmyglu á heimili sínu og missti allt sem hún átti og næstum vonina líka. Í viðtali við Ásdísi lýsir hún hvernig var að vera heimilislaus, heilsulaus, atvinnulaus og koma alls staðar að lokuðum dyrum. Ólafur Páll Sigurðsson segir Gunnari Smára frá skáldsögunni Villistrákum og höfundi hennar William S. Burroughs, því alræmda skáldi. Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaðamaður og leiðsögumaður, vill að tekin verði upp löggilding meðal leiðsögumanna hér á landi. Í samtali Björns Þorláks við Pál Ásgeir ber samanburð færeyskrar og íslenskrar ferðaþjónustu á góma en í Færeyjum hafa leyfislausir leiðsögumenn verið handteknir undanfarið. Arnþór Gunnarsson sagnfræðingur segir Gunnari Smára frá hringveginum, undirbúningi hans, lagningu, vígslu og áhrifum.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






