Rauða borðið 10. júní - Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga
Miðvikudagur 10. júní
Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga
Margrét Friðriks á frettin.is ræðir spillta íslenska yfirstétt sem hún segir stöðugt vinna gegn sér. Hún ræðir nýfallinn ærumeiðingadóm, eigin áfallasögu og gönguna með Jesú Kristi í samtali við Björn Þorláks og Ásdísi Olsen. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, stríðin og ESB. Hallgrímur Oddsson hagfræðingur í Brussel ræðir glænýja skýrslu um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja. Tollar, gjaldmiðlar og geópólitískar sviptingar koma til umræðu í spjalli hans við Björn Þorláks. Bjarni M. Bjarnason rithöfundur hefur varið tímanum á kaffihúsum undanfarið. Ekki til að slæpast heldur til að skrifa doktorsritgerð! Björn Þorláks ræðir við Bjarna. „Þjáningin varð fæðingarhríðir skilningsins”, segir Marta Eiríksdóttir, kennari og jógakona um erfiðustu ár ævi sinnar í samtali við Ásdísi Olsen.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






