Rauða borðið 20. ágúst - Fréttir dagsins, Evrópumál, bráðnun jökla og menntamál
Fimmtudagur 20. ágúst
Fréttir dagsins, Evrópumál, bráðnun jökla og menntamál
Oddný Harðardóttir, fyrrum þingkona, Yngvi Ómar Sigrúnarson formaður Leigjendasamtakanna og Anton Helgi Jónsson skáld ræða Evrópukosninguna fram undan, ofurvexti, Menningarnótt fram undan og fleira. Björn Þorláks stýrir umræðunni. Ragnar Baldursson stjórnmála- og Kínafræðingur ræðir við Gunnar Smára um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og stöðu Íslands í breyttum heimi. Guðfinna Aðalgeirsdóttir, prófessor í jarðvísindadeild, segir Gunnari Smára frá rannsóknum sínum á áhrifum loftlagsbreytinga á jökla og afleiðingum af bráðnun jökla. Örn Valdimarsson kennari vill breyta stærðfræðikennslu með tækninýjungum og gervigreind. Hann ræðir við Björn Þorláks.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






