Rauða borðið 7. sept - Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi
Mánudagur 7. september
Gulur september, Bretland, kynjafræði, Skattland og Jónsi
Margt bendir til að hefðbundin nálgun heilbrigðiskerfisins dugi ekki í öllum tilvikum gagnvart þeim sem líður illa andlega. Of mikil áhersla er á lyfjagjöf. Sjálfsvíg eru þjóðarmein. Auður Axelsdóttir hjá Hugarafli ræðir við Björn Þorláksson. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur fer yfir helstu fréttir í Bretlandi með Gunnari Smára; landsfund Umbótaflokksins, dauða Jason Arday og fyrstu daga nýs forsætisráðherra. Kvenska og karlmennska voru til umræðu í viðtali Ásdísar Ólsen við Hönnu Björk Vilhjálmsdóttur, brautryðjanda í kynjafræði framhaldsskólanna. Þar kom fram að reiði og ofbeldi geta verið afleiðing af tilfinningabælingu hjá strákum. Einnig var rætt um kvensku og mæðrahyggja, og hve mikilvægt er að allir uppeldisaðilar séu meðvitaðir um kynjaskekkjurnar. Sverrir Jakobsson prófessor segir Gunnari Smára frá myndun ríkisvalds á Íslandi og fyrstu öldum landsins undir Noregskóngi. Kórstjórarnir Sunna Karen Einarsdóttir og Magnús Ragnarsson ræða gildi söngsins, Jón Stefánsson organista og kórstjóra; arfleifð hans, tónleika og minningasjóð. Björn Þorláks ræðir við þau.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






