Rauða borðið 16. sept - Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal
Miðvikudagur 16. september
Gervigreind, einræði, kosningar, hugvíkkandi og Ingimar Eydal
Kristinn Rúnar Þórisson prófessor í tölvuvísindum við HR ræðir um gervigreind við Gunnar Smára, hvort tæknin geti vaxið manninum yfir höfuð og eytt honum. Björn Bjarnason fyrrum þingmaður og ráðherra sendir frá sér þrjár þýðingar í ár, allt á bókum sem fjalla um breytta stöðu heimsmála. Hann segir Gunnari Smára frá þessum bókum og einkum Einræði hf. eftir Anne Applebaum. Henry Alexander Henrysson heimspekingur svarar Birni Þorláks hvort það sé í lagi að ljúga til að ná fram niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þórarinn Ævarsson athafnamaður segir Ásdísi Ólsen frá glíma sinni við OxyContin-fíkn, skömmina og óttann og sátt við föður sinn. Jón Ólafsson tónlistarmaður ræðir hljómsveit Ingimars Eydal við Björn Þorláks, sveit sem átti sér engan líka.
Fleiri þættir af Samstöðin
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Bókaborðið 4. þáttur - Hilla hinna ólesnu bóka6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Bridgeþátturinn - Parameistarar4. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026






