#113 - Sindri Snær fór handarbrotinn í golfferð
Við fengum til okkar athafnamanninn Sindra Snæ Jensson til okkar í Seinni níu. Hann er í fjölþættum fyrirtækjarekstri alltfrá pizzastaðnum Flatey og yfir í næturklúbbinn Auto.
Sindri hóf að leika golf fyrir sex árum þegar knattspyrnuferlinum lauk og hefur náð fínum tökum á íþróttinni. Hann varð algjörlega sjúkur í golf fyrstu árin og er í dag með ca. 13 í forgjöf.
Í þættinum er aðeins farið yfir ferð Sindra ásamt góðum mönnum til Írlands þar sem leiknir voru margir af bestu völlunum á Dublin svæðinu. Sindri kom með frábært draumaholl og fór einnig yfir þá kylfinga sem honum þykir vera svalastir í atvinnumannagolfinu.
Einnig ræðum við aðeins íslenska golffatamerkið Brutta en þar er Sindri stór hluthafi.
Frábær þáttur á léttum nótum eins og alltaf.
Fleiri þættir af Seinni níu
- #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel5. október 2026
- #131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð30. september 2026
- #130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf20. september 2026
- #129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun14. september 2026
- #128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari7. september 2026
- #127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi31. ágúst 2026






