Seinni níu

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Íþróttir

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

#125 - Gauti þjálfar marga af bestu kylfingum landsins

#125 - Gauti þjálfar marga af bestu kylfingum landsins

17ágú

Við fengum til okkar Gauta Grétarsson í gott spjall á dögunum. Gauti er einn fremsti sjúkraþjálfari landsins og þjálfar marga af bestu kylfingum landsins. Gauti er þrautreyndur íþróttaþjálfari og þjálfaði handbolta á árum áður. Sú reynsla nýtist vel við þjálfun á líkamlegum og andlegum þætti í golfi. Í þættinu ræðir Gauti við okkur hvernig hann undirbjó Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson fyrir Íslandsmótið í golfi með því að æfingum í vonskuveðri á Nesvellinum. Gauti varð Íslandsmeistari eldri kylfinga á dögunum og hann ræðir við okkur um það hvernig hann byrjaði í golfi, að verða neðstur í sínu fyrsta Íslandsmóti og hversu mikið jákvæð hugsun getur hjálpað á golfvellinum. Frábært spjall við einn fremsta þjálfara landsins!

#124 - Gísli Hall er formaður fjölmennasta golfklúbbs í heimi

#124 - Gísli Hall er formaður fjölmennasta golfklúbbs í heimi

11ágú

Við fengum Gísla Guðna Hall, lögmann og formann Golfklúbbs Reykjavíkur. Við í Seinni níu höldum því fram að GR sé fjölmennasti golfklúbbur í heimi en í klúbbnum eru nú um 3500 félagsmenn. Í þættinum ræðum við um nýafstaðið Íslandsmót sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli. Mótið heppnaðist með eindæmum vel. Gísli fór aðeins yfir mótið og hvaða þýðingu það hefur fyrir klúbbinn að halda Íslandsmót. Við verjum góðum tíma í að ræða þær endurbætur sem standa yfir í Grafarholti. Þar er stefnt að því að endurbyggja allar flatir vallarins í áföngum og í sumar voru teknar í notkun nýjar flatir á fyrstu þremur brautum vallarsins. Mjög spennandi verkefni. Gísli er góður kylfingur og hefur lengi verið með lága forgjöf. Hann spilar mikið og víða um heim. Gísli á það á ferilsskránni að hafa sex sinnum farið holu í höggi og á nokkrum af erfiðari par-3 brautum valla GR. Draumahollið og kraftröðun á sínum stað í mjög skemmtilegum og áhugaverðum þætti. Í raun skylduhlustun fyrir félagsmann í GR.

#123 - Rúrik tvívegis misst af rástíma með Figo

#123 - Rúrik tvívegis misst af rástíma með Figo

3ágú

Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason kom í heimsókn en hann hóf að leika golf fyrir rúmum þremur árum og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni. Rúrik er með 8,7 í forgjöf og leikur aðallega golf í Madríd, þar sem hann er nú búsettur. Hann er í sama golfklúbbi og þekktir knattspyrnumenn á borð við Luís Figo og Raúl og hefur tvívegis fengið boð um að spila með þeim. Í bæði skiptin þurfti Rúrik hins vegar að afþakka en á inni hring með þessum goðsögnum. Í þættinum, sem er sá lengsti frá upphafi Seinni níu, er komið víða við. Rúrik fer yfir helstu mistökin sem hann gerði þegar hann var að byrja í golfi og gefur byrjendum góð ráð í skemmtilegri kraftaröð. Draumahollið var sérstaklega huggulegt en þar kemur David Beckham við sögu. Rúrik segir meðal annars sprenghlægilega sögu af því þegar hann hitti Beckham á veitingastað. Þetta er meiriháttar þáttur þar sem margt áhugavert ber á góma.

#122 - Séra Hjálmar þrisvar farið holu í höggi á sömu holu

#122 - Séra Hjálmar þrisvar farið holu í höggi á sömu holu

27júl

Við fengum séra Hjálmar Jónsson í gott spjall í Seinni níu. Hann hefur leikið golf í rúm 20 ár og er með rétt tæplega 20 í forgjöf. Hjálmar er auðvitað prestur og við veltum því fyrir okkur hvort það hjálpi að vera með Guð í liði á golfvellinum. Í sumar náði Hjálmar þeim ótrúlega áfanga að fara í þriðja sinn holu í höggi á 8. braut á Urriðavelli. Sú umræða fór auðvitað ekkert fyrir brjóstið á Loga. Presturinn sagði okkur einnig magnaða sögu af aðdragandanum að því þegar hann fór holu í höggi á 4. braut á Urriðavelli. Æðri máttarvöld virtust þar hafa verið með í för. Þetta var stórmerkilegur þáttur enda er Hjálmar einstakur sögumaður. Draumahollið var á sínum stað og að lokum fórum við yfir kraftröðun þeirra atvinnukylfinga sem eru trúaðir.

#121 - Hulda Clara á yfir 200 metra ás

#121 - Hulda Clara á yfir 200 metra ás

20júl

Það var líf og fjör hjá okkur í Seinni níu að loknu Opna breska. Við tókum létta umræðu um það en fengum líka frábæran gest því Hulda Clara Gestdóttir kom í heimsókn til okkar. Hulda Clara er atvinnukona í golfi og vann sinn fyrsta sigur sem atvinnumaður í síðasta mánuði. Hún leikur á LET Access mótaröðinni sem er næststerkasta atvinnumannamótaröð kvenna í Evrópu. Hún hefur jafnframt tvívegis orðið Íslandsmeistari. Hulda sagði okkur aðeins frá því hvernig hún byrjaði í golfi og þegar hún fór holu í höggi á yfir 200 metra langri par-3 braut. Hún hefur tvívegis farið holu í höggi en vill síður ræða það hvernig seinni ásinn atvikaðist. Skemmtileg saga. Hulda segir okkur frá lífi sínu sem atvinnumaður, og hvernig þekking á reglunum getur hjálpað í golfi. Hún tók dómararréttindi í vetur til að efla þekkingu sína á reglunum. Hvað á maður t.d. að gera þegar api tekur boltann þinn við keppni í Suður-Afríku? Frábær þáttur með þar sem við fáum auðvitað draumaholl og kraftröðun.

#120 - Höddi Magg gaf golfsettið sitt

#120 - Höddi Magg gaf golfsettið sitt

13júl

Hörður Magnússon kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hann er einn harðasti aðdáandi Phil Mickelson á landinu, en Bandaríkjamaðurinn hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið. Við fórum vel yfir stöðuna og fengum kraftröðun yfir bestu sigra Mickelson á ferlinum. Höddi Magg byrjaði að spila golf um þrítugt og spilar lítið um þessar mundir. Raunar svo lítið að hann gaf syni sínum golfsettið sitt fyrir ekki svo löngu. Hann er því minna á vellinum en fylgist þeim mun ástríðufyllra með íþróttinni í sjónvarpinu. Bryson DeChambeau fékk einnig smá pláss í þættinum, en Höddi er ekki sérlega hrifinn af þeim kylfingi. Við hituðum líka upp fyrir Opna breska og fórum yfir ýmislegt fleira. Draumahollið er á sínum stað og að sjálfsögðu ræðum við líka örlítið um fótbolta. Frábær þáttur að venju!

#119 - Hrafnkell Freyr er með ólöglegan dræver

#119 - Hrafnkell Freyr er með ólöglegan dræver

6júl

Við fengum til okkar þekktasta málara landsins í Seinni níu. Hrafnkell Freyr Ágústsson, betur þekktur sem Keli í Dr. Football, mætti í þáttinn en hann byrjaði í golfi seint síðasta sumar. Eftir að hafa slegið gott golfhögg í mannskaðaveðri þá féll Keli algjörlega fyrir íþróttinni. Hrafnkell er að bíða eftir að fá nýjan dræver frá Takomo en dræverinn sem hann keypti fyrr á þessu ári reyndist vera ólöglegur. Keli er félagi í Golfklúbbi Grindavíkur og hann leikur mikið golf á Suðurnesjum. Það kom á daginn að Keli er mikilli aðdáandi okkar í Seinni níu og við fengum hann til að kraftraða sínum uppáhaldsþáttum af Seinni níu sem reyndist mjög áhugaverður listi. Sömuleiðis fengum við tvö draumaholl. Frábær þáttur þar sem komið er víða við og auðvitað á léttu nótunum.

#118 - Fannar í Hipsumhaps lærði yfir sig á Youtube

#118 - Fannar í Hipsumhaps lærði yfir sig á Youtube

29jún

Sumarið er í blóma og gestur Seinni níu að þessu sinni er tónlistamaður sem við vissum hreinlega ekki að stundaði golf. Fannar Ingi Friðþjófsson, forsprakki Hipsumhaps. Fannar er einmitt að gefa út nýja plötu um þessar mundir. Við ræðum aðeins um tónlistina en aðallega um golf. Fannar ólst upp á Álftanesi og við ræðum aðeins um golfvöllinn á Álftanesi og einnig Opna álftneska mótið sem Fannar stendur árlega að. Fannar er ekki í golfklúbbi. Þess í stað spilar hann aðallega með vinum sínum sem starfa í bönkum eða ráðgjafafyrirtækjum og eiga greitt aðgengi að helstu golfvöllum landsins. Hann er með 20 í forgjöf og hefur verið fastur í þeirri forgjöf undanfarin ár - ekki hjálpaði þegar hann fékk brjósklos í hálsinn fyrir tveimur árum. Í þættinum er auðvitað komið víða við. Við fáum draumaholl og skemmtilega kraftröðun þar sem Youtube golfkennarar koma við sögu. Frábær þáttur á skemmtilegum nótum.

#117 - Gunnu Dís er farið að dreyma um golf á nóttunni

#117 - Gunnu Dís er farið að dreyma um golf á nóttunni

23jún

Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu, því útvarps- og sjónvarpsstjarnan Guðrún Dís Emilsdóttir tók sig til og ræddi við okkur um golf. Hún byrjaði af krafti í golfíþróttinni fyrir örfáum árum og er hreinlega farin að dreyma um golf á nóttunni. Gunna Dís er með 37 í forgjöf, er meðlimur í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og leikur talsvert golf yfir sumartímann. Það er margt við golfíþróttina sem hefur komið henni á óvart og fer hún yfir það í skemmtilegri kraftröðun. Sömuleiðis kemur hún með mjög skemmtilegt draumaholl. Við komum víða við í þættinum. Meðal annars kemur í ljós að Gunna hélt vitlaust á kylfunni allt síðasta sumar. Hún notar einnig 7-tré mikið í kringum flatirnar með frekar sérstökum hætti. Frábær þáttur þar sem við förum yfir Opna bandaríska meistaramótið og þátttöku Gunnlaugs Árna í mótinu.

#116 - Aron Snær fékk áttu á par3 holu en vann samt mótið

#116 - Aron Snær fékk áttu á par3 holu en vann samt mótið

15jún

Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara, Aron Snæ Júlíusson, í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þessi tæplega þrítugi kylfingur varð Íslandsmeistari 2021 á Akureyri og svo aftur 2024 á Hólmsvelli í Leiru á mótsmeti eða 16 höggum undir pari. Hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu og unnið fyrstu þrjú mótin á GSÍ-mótaröðinni. Aron verður hins vegar ekki með á Íslandsmótinu í holukeppni um næstu helgi en hann er að fara sem áhorfandi á Opna bandaríska meistaramótið þar sem félagi hans úr GKG, Gunnlaugur Árni Sveinsson, mun fyrstur Íslendinga taka þátt í mótinu. Opna bandaríska fær gott pláss í þættinum en við förum um víðan völl í spjalli okkar við Aron. Hann segir okkur aðeins frá því hvernig hann byrjaði í golfi. Við tökum stöðuna á ferli Arons sem atvinnumaður og svo segir Aron okkur frá því hvernig honum tókst að leika nokkuð stutta par3 braut á 8 höggum en standa samt uppi sem sigurvegari. Mjög áhugaverður og skemmtilegur þáttur með einum besta kylfingi Íslands.

Þér gæti líka líkað...