#130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf
Það var létt yfir okkur í vikunni þegar Logi Sigurðsson, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja og Íslandsmeistari í golfi 2023, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Logi er, líkt og nafni hans, alltaf léttur.
Logi sagði okkur aðeins frá ferlinum sínum og það kom okkur ansi mikið á óvart að heyra að hann hafi orðið Íslandsmeistari aðeins sex árum eftir að hann hóf formlega að æfa golf. Það gerði hann ekki fyrr en 17 ára gamall og má með sanni segja að uppgangur hans í íþróttinni hafi verið með ólíkindum.
Við komum víða við í þessum þætti og fórum meðal annars yfir merkilegt atvik frá Íslandsmótinu í sumar þegar Logi lék á ellefu höggum á 4. braut Korpúlfsstaðavallar. Logi fer skemmtilega yfir þessa lífsreynslu.
Einnig ræddum við hvernig það var fyrir Loga að verða Íslandsmeistari á Urriðavelli árið 2023. Það var merkilegt, enda hafði Sigurður Sigurðsson, pabbi Loga, orðið Íslandsmeistari árið 1988.
Mjög skemmtilegur þáttur þar sem við förum yfir draumahollið hans Loga og hann segir okkur líka frá þeim fimm atriðum sem eru hvað þreytulegust að heyra á golfvellinum.
Frábær þáttur sem við mælum eindregið með!
Fleiri þættir af Seinni níu
- #138 - Gurrý braut dræverinn í golfhermi16. nóvember 2026
- #137 - Adam Ægir segir holu í höggi á par3 velli gilda8. nóvember 2026
- #136 - Sigursteinn óttast mest að konan hans fari holu í höggi2. nóvember 2026
- #135 - Haukur spilaði fimm golfvelli á einum degi26. október 2026
- #134 - Örn valdi alls ekki draumahollið19. október 2026
- #133 - Karen varð Íslandsmeistari átta ár í röð en hefur ekki enn farið holu í höggi12. október 2026






