#110 - Liðleika Lilja þolir ekki óumbeðin ráð frá eiginmanninum
Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Lilja Sigurgeirsdóttir sem er þekkt sem Liðleikja Lilja kom til okkar. Hún hefur um nokkurra ára skeið sérhæft sig í að þjálfa fólk sem vill auka liðleika og bæta hreyfigetu sína.
Lilja byrjaði sjálf í golfi fyrir tveimur árum og féll gjörsamlega fyrir golfíþróttinni. Hún er í dag í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og nær að koma golfi að í flest sín samtöl.
Þó hún hjálpi meðal annars afrekskylfingum við að auka liðleika þá skilur hún ekki hversu langan tíma það tekur að verða góð í golfi.
Í þættinum velur Lilja sitt draumaholl og kemur með kraftröðun yfir þau fimm atriði sem fara mest í taugarnar á henni.
Frábær þáttur og mjög fróðlegur. Lilja fer meðal annars yfir þær teygjur sem kylfingar ættu stunda til að bæta liðleika og leysa úr læðingi aukinn kraft úr golfsveiflunni.
Frábær þáttur og á léttum nótum að venju!
Fleiri þættir af Seinni níu
- #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel5. október 2026
- #131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð30. september 2026
- #130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf20. september 2026
- #129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun14. september 2026
- #128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari7. september 2026
- #127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi31. ágúst 2026






