#108 - Jón Halldórsson vill langa golfhringi

· Íþróttir

Við fengum frábæran gest í Seinni níu því formaður HSÍ, Jón Halldórsson, heiðraði okkur með nærveru sinni. Jón er að snúa aftur á golfvöllinn eftir að hafa undirgengist hnjáliðaskipti og nú á að taka golfið með trompi í sumar.
Jón segir okkur aðeins frá því hvernig hann endaði sem formaður HSÍ og því verkefni sem er framundan þar. Við ræddum þó aðallega um golf og þar kom í ljós Jón er með um 18 í forgjöf og byrjaði í golfi eftir veðmál við kunnan handboltaþjálfara.
Við fórum að sjálfsögðu yfir draumahollið sem var mjög óvænt að þessu sinni. Jón kom einnig með kraftröðun á þeim landsliðsmönnum í handbolta sem hann telur líklegt að séu bestir í golfi í landsliðshópi karla.
Frábær þáttur á mjög léttum nótum að venju.

Seinni níu

Úr hlaðvarpinu

Seinni níu

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Seinni níu