#107 - Sigmundur gerði jafntefli við Rory árið 2005

· Íþróttir

Við gerðum upp Masters með frábærum gesti því Sigmundur Einar Másson kom í heimsókn til okkar. Hann er fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi og mikill tölfræðigrúskari.
Rory McIlroy fagnaði sigri á Masters annað árið í röð og Sigmundur sagði okkur frá því þegar hann mætti honum í Evrópumóti landsliða árið 2005. Keppni þeirra á milli endaði með jafntefli og við fórum aðeins yfir það afrek.
Simmi er mikill tölfræðipælari og því var þátturinn á frekar tæknilegum nótum að þessu sinni. Hann kom með stórskemmtilega kraftröðun yfir erfiðstu par-3 holur landsins miðað við tölfræði PGA-leikmanna.
Draumahollið á sínum stað og ýmislegt stórskemmtilegt!

Seinni níu

Úr hlaðvarpinu

Seinni níu

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Seinni níu