#104 - Kristín Elfa er golfsjúkasta kona landsins
Við fengum golfsjúkustu konu landsins, að eigin sögn, í heimsókn í Seinni níu. Kristín Elfa Axelsdóttir, kylfingur í GKG, hóf að leika golf fyrir fimm árum og nú snýst líf hennar að stórum hluta um að komast í golf.
Hún starfar hjá Festi, þar sem ríkir mikil golfmenning sem varð til þess að hún prófaði golf. Það var ekki aftur snúið og á síðasta ári lék Kristín yfir 100 átján holu golfhringi.
Kristín er með um 24 í forgjöf og stefnir hún að því að komast undir 20 á árinu. Kristín sagði okkur frá þeirri merkilegu staðreynd að hún notar 8-járnið í löng pútt, sem hefur vakið mikla undrun meðal meðspilara hennar.
Draumahollið er á sínum stað og svo kom Kristín með Powerrank, þar sem hún fer yfir þá hluti sem fara í taugarnar á henni á golfvellinum.
Frábær þáttur sem kemur svo sannarlega á óvart!
Fleiri þættir af Seinni níu
- #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel5. október 2026
- #131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð30. september 2026
- #130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf20. september 2026
- #129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun14. september 2026
- #128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari7. september 2026
- #127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi31. ágúst 2026






