#99 - Axel ætlar sér fleiri Íslandsmeistaratitla
Við fáum til okkar frábæran gest því Axel Bóasson, þrefaldur Íslandsmeistari í golfi, kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu.
Í þættinum förum við yfir ferilinn hjá Axel en hann er nýlega tekinn við sem yfirþjálfari hjá Golfklúbbnum Keili eftir atvinnumannaferil. Hann segir okkur frá hæðum og lægðum á keppnisferlinum og greinir okkur frá því hversu andlega erfið þess íþrótt er fyrir kylfinga sem eru að reyna að keppa meðal þeirra bestu með feta upp metorðastigann.
Árið 2017 var hans besta keppnistímabil en hann varð þá Íslandsmeistari ásamt því að verða efstur á stigalistanum á Norrænu mótaröðinni sem tryggði honum keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni. Í kjölfarið fyldi erfitt ár þar sem honum tókst ekki alveg að finna taktinn en varði þó Íslandsmeistaratitilinn í Vestmannaeyjum.
Í þættinum er komið víða við. Axel segir okkur frá því að hann púttar best með stuttum pútter eða helst þannig að hann þurfi að standa mjög gleiður þegar hann púttar.
Draumahollið er á sínum stað og svo velur Axel þær golfholur á Íslandi sem honum finnst mjög krefjandi af öftustu teigum.
Frábær þáttur sem gefur hlustendum innsýn inn í líf eins af okkar bestu kylfingum en Axel er ekki hættur og stefnir að því að vera sigursælasti kylfingurinn í sinni fjölskyldu.
Fleiri þættir af Seinni níu
- #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel5. október 2026
- #131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð30. september 2026
- #130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf20. september 2026
- #129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun14. september 2026
- #128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari7. september 2026
- #127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi31. ágúst 2026






