#97 - Fúsi þarf extra þykk grip
Við fáum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því handboltahetjan Sigfús Sigurðsson kemur í heimsókn til okkar. Hann ræðir aðeins við okkur um handbolta en aðallega um golf.
Sigfús er með um 15 í forgjöf og hóf ungur að leika golf. Hann hætti hins vegar á unglingsaldri þar sem það þótti ekki töff að spila golf á þeim árum.
Fúsi er með stórar krumlur og lenti í vandræðum snemma á ferlinum með golfgripið sem hann kreisti aðeins of mikið. Nú er stefnan sett á að fá júmbó-grip á kylfurnar.
Hann hóf að leika golf að nýju þegar handboltaferilinn var að baki. Fúsi spilar mikið golf og þá sérstaklega á kvöldin enda stendur hann vaktina í fiskbúðinni sinni í Skipholti flesta daga. Hann er félagi í GR og spilar mest þar.
Við fáum að heyra af ótrúlegu pari hjá Fúsa og daumahollinu þar sem litríkir kappar koma við sögu. Svo fengum við að heyra ótrúlega sögu af dóttur Fúsa af golfvellinum - saga sem Logi kærði sig eiginlega ekki um að heyra.
Skemmtilegur þáttur á léttu nótunum.
Fleiri þættir af Seinni níu
- #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel5. október 2026
- #131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð30. september 2026
- #130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf20. september 2026
- #129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun14. september 2026
- #128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari7. september 2026
- #127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi31. ágúst 2026






