#30 - Margeir bíður enn eftir ásnum
Margeir Vilhjálmsson er gestur okkar þessa vikuna í Seinni
níu. Hann er frábær kylfingur að eigin sögn með um 1 í forgjöf. Hann segir okkur frá því hvernig hann byrjaði í golfi en í kjölfarið hefur Margeir orðið mjög áberandi karakter í íslensku golfi.
Margeir var um tíma framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og tók virkan þátt í uppbyggingu á Korpúlfsstaðavelli og Básum.
Við fórum yfir atvikið á Akureyri árið 2022 sem varð þess valdandi að Margeir var dæmdur í keppnisbann. Einnig kom í ljós að hann hefur ekki farið holu í höggi þrátt fyrir að hafa spilað golf í 39 ár.
Ýmislegt fleira bar á góma. Margeir segir okkur frá golfkennarastarfinu og sömuleiðis frá Black Sands verkefninu sem því miður varð hruninu að bráð en sá golfvöllur hefði orðið einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Powerrank og spurning vikunnar.
Frábær þáttur sem við getum óhikað mælt með.
Seinni Níu er í boði:
✈️- PLAY
💊- Unbroken
👟- ECCO
⛳- Eagle Golfferðir
🚗- XPENG
🧼- Lindin bílaþvottastöð
🏚️ - Betri stofan
Fleiri þættir af Seinni níu
- #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel5. október 2026
- #131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð30. september 2026
- #130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf20. september 2026
- #129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun14. september 2026
- #128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari7. september 2026
- #127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi31. ágúst 2026






