#119 - Hrafnkell Freyr er með ólöglegan dræver
Við fengum til okkar þekktasta málara landsins í Seinni níu. Hrafnkell Freyr Ágústsson, betur þekktur sem Keli í Dr. Football, mætti í þáttinn en hann byrjaði í golfi seint síðasta sumar. Eftir að hafa slegið gott golfhögg í mannskaðaveðri þá féll Keli algjörlega fyrir íþróttinni.
Hrafnkell er að bíða eftir að fá nýjan dræver frá Takomo en dræverinn sem hann keypti fyrr á þessu ári reyndist vera ólöglegur. Keli er félagi í Golfklúbbi Grindavíkur og hann leikur mikið golf á Suðurnesjum.
Það kom á daginn að Keli er mikilli aðdáandi okkar í Seinni níu og við fengum hann til að kraftraða sínum uppáhaldsþáttum af Seinni níu sem reyndist mjög áhugaverður listi. Sömuleiðis fengum við tvö draumaholl.
Frábær þáttur þar sem komið er víða við og auðvitað á léttu nótunum.
Fleiri þættir af Seinni níu
- #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel5. október 2026
- #131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð30. september 2026
- #130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf20. september 2026
- #129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun14. september 2026
- #128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari7. september 2026
- #127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi31. ágúst 2026






