#122 - Séra Hjálmar þrisvar farið holu í höggi á sömu holu
Við fengum séra Hjálmar Jónsson í gott spjall í Seinni níu. Hann hefur leikið golf í rúm 20 ár og er með rétt tæplega 20 í forgjöf. Hjálmar er auðvitað prestur og við veltum því fyrir okkur hvort það hjálpi að vera með Guð í liði á golfvellinum.
Í sumar náði Hjálmar þeim ótrúlega áfanga að fara í þriðja sinn holu í höggi á 8. braut á Urriðavelli. Sú umræða fór auðvitað ekkert fyrir brjóstið á Loga. Presturinn sagði okkur einnig magnaða sögu af aðdragandanum að því þegar hann fór holu í höggi á 4. braut á Urriðavelli. Æðri máttarvöld virtust þar hafa verið með í för.
Þetta var stórmerkilegur þáttur enda er Hjálmar einstakur sögumaður. Draumahollið var á sínum stað og að lokum fórum við yfir kraftröðun þeirra atvinnukylfinga sem eru trúaðir.
Fleiri þættir af Seinni níu
- #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel5. október 2026
- #131 - Aron og Axel í sinni fyrstu golfferð30. september 2026
- #130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf20. september 2026
- #129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun14. september 2026
- #128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari7. september 2026
- #127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi31. ágúst 2026






