Skagahraðlestin er hlaðvarpsþáttur framleiddur af stuðningsmönnum ÍA í knattspyrnu. Um borð í Skagahraðlestina munu koma ýmsir viðmælendur sem tengjast félaginu á einn eða annan hátt.
Teitur Þórðarson – Þjálfarinn
27. desember, 2023
Jólaþáttur Skagahraðlestarinnar 2023 er viðtal við Teit Þórðarson í tveimur hlutum. Í síðari hlutanum er fjallað um þjálfarann Teit Þórðarson. Þjálfaraferill Teits spannar rúm 30 ár þar sem hann þjálfaði í Svíþjóð, Noregi, Eistlandi, Íslandi, Kanada og næstum…
Teitur Þórðarson – Leikmaðurinn
18. desember, 2023
Jólaþáttur Skagahraðlestarinnar 2023 er viðtal við Teit Þórðarson í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum er fjallað um leikmanninn Teit Þórðarson og í þeim síðari þjálfarann. Leikmannaferill Teits er fyrir margt merkilegur.
Fleiri örsögur
11. nóvember, 2020
Við höldum áfram að segja örsögur úr sögu ÍA líkt og í síðasta þætti. Fjallað verður um umdeildan Íslandsmeistaratitil árið 1958, dómaraleikinn fræga árið 1992 og Bjarnamarkið svo eitthvað sé nefnt. Viðmælendur: Sturlaugur Haraldsson og Andri Júlíusson.
Örsögur
2. október, 2020
ÍA hefur verið í fremstu röð í íslenskri knattspyrnu í 70 ár. Á ýmsu hefur gengið en viðfangsefni þáttarins eru nokkur einkennileg mál í sögu félagsins. Svaðilför á sjó, ólöglegir leikmenn og fleira.
George Kirby
23. júlí, 2020
George Kirby hafði mikil áhrif á knattspyrnuna á Akranesi. Hann gerði Skagamenn að Íslandsmeisturum 1974, 1975 og 1977 og að bikarmeisturum 1978 og 1982. Ferli hans hjá ÍA lauk þá á sorglegan hátt þegar ÍA féll úr efstu deild árið 1990.
Bikarbullið
10. júlí, 2020
Árið 1997 fór fram afar einkennilegur leikur í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar. Viðmælendur: Steinar Adolfsson, Pálmi Haraldsson, Ellert Jón Björnsson, Hjálmur Dór Hjálmsson, Jóhannes Gíslason og Sæmundur Víglundsson.
Bakarinn – Seinni hluti
26. júní, 2020
Bakarinn, Gunnar Sigurðsson, var í forystu knattspyrnunnar á Akranesi hátt í þrjátíu ár. Það gekk á ýmsu á þessum tíma en það hefur gustað um Gunnar alla tíð og hann hefur verið umdeildur. Í viðtalinu verða hæðir og lægðir hans á ferlinum ræddar.
Bakarinn – Fyrri hluti
13. júní, 2020
Bakarinn, Gunnar Sigurðsson, var í forystu knattspyrnunnar á Akranesi hátt í þrjátíu ár. Það gekk á ýmsu á þessum tíma en það hefur gustað um Gunnar alla tíð og hann hefur verið umdeildur. Í viðtalinu verða hæðir og lægðir hans á ferlinum ræddar.
Uppgjör
27. september, 2019
Í þættinum fyrir síðasta heimaleik Skagans er knattspyrnuárið gert upp á skemmtilegan hátt. Reynt verður að fanga stemninguna í kringum liðið og stiklað á því helsta sem gekk á.
Minningar
16. september, 2019
Í níunda þætti Skagahraðlestarinnar fengum við þrjá Skagamenn, þau Hörð Helgason, Ellu Maríu Gunnarsdóttur og Sverri Mar Smárason til að segja okkur frá sínum eftirminnilegustu minningum tengdum Knattspyrnufélagi ÍA.