86 - Konstantínus mikli
Í þættinum í dag ræða Söguskoðunarmenn rómarkeisarann Konstantínus I, sem er einn þeirra sem fengið hafa nafnbótina hinn mikli.
Konstantínus ruddist til valda í Rómaveldi árið 306 eftir talsvert valdabrölt innan fjórveldisins sem Díókletíanus kom á laggirnar eftir þriðju aldar kreppuna. Hann varð einvaldur árið 324 og ríkti sem slíkur í 19 ár. Var hann þaulsetnasti rómarkeisarinn á eftir Ágústusi.
Konstantínus hélt áfram umbótum Díokletíanusar og kom á stöðuleika í nokkur ár. Umgjörð síðrómverska ríkisins og síðar austrómverska ríkisins er arfleifð hans en hann stofnaði nýja höfuðborg Rómaveldis í Nýju Róm, Konstantínópel, sem átti eftir að vera miðpunktur nýs Rómaveldis í meira en þúsund ár. Þar fyrir utan var Konstantínus fyrsti kristni rómarkeisarinn og vann hann ötullega að því að koma kirkjunni á koppinn, en fyrir hans daga voru kristnir menn reglulega ofsóttir í Rómaveldi.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Fleiri þættir af Söguskoðun
- 128 - Suðurríkin, þrælahaldið og aðdragandi ameríska borgarastríðsins17. september 2026
- 127 - Rússneska borgarastyrjöldin: Hverjir voru hvítliðar?28. ágúst 2026
- 126 - Hannibal, Karþagó og Púnverjastríðin17. júlí 2026
- 125 - Hugmyndin um réttlátt stríð7. júlí 2026
- 124 - Ríki, vald og realismi: Hvernig haga ríki sér?24. júní 2026
- 123 - Skálholt: Hinn forni höfuðstaður Íslands9. júní 2026






