67 - Ris og fall kommúnismans í Austur-Evrópu I. hluti
Austurblokkin var samansafn kommúnistaríkja í Mið- og Austur-Evrópu sem Sovétmenn settu á laggirnar í aðdraganda kalda stríðsins. Árið 1989 hrundu þau öll eins og spilaborgir, í flestum tilfellum friðsamlega. Segja má að kraftaverkaárið 1989 marki upphaf okkar samtíma, en þá gjörbreyttist sú heimsmynd sem komið hafði verið á eftir seinni heimsstyrjöld. Kalda stríðinu var lokið, kommúnisminn hruninn og við tók tímabil samruna Evrópu og útþennslu NATO til austurs. Sovétríkin liðu undir lok árið 1991.
Í þessum tvöfalda þætti ræða Söguskoðunarmenn ris og fall kommúnismans austan við járntjald, nánar tiltekið í Austur-Þýskalandi, Póllandi, Ungverjandi, Tékkóslóvakíu, Albaníu, Rúmeníu og Búlgaríu. Hrunið átti sér dágóðan aðdraganda og til þess að ræða kraftaverkaárið 1989 er farið hér vítt og breytt um sögu svæðisins frá 1944 til vorra daga.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Fleiri þættir af Söguskoðun
- 128 - Suðurríkin, þrælahaldið og aðdragandi ameríska borgarastríðsins17. september 2026
- 127 - Rússneska borgarastyrjöldin: Hverjir voru hvítliðar?28. ágúst 2026
- 126 - Hannibal, Karþagó og Púnverjastríðin17. júlí 2026
- 125 - Hugmyndin um réttlátt stríð7. júlí 2026
- 124 - Ríki, vald og realismi: Hvernig haga ríki sér?24. júní 2026
- 123 - Skálholt: Hinn forni höfuðstaður Íslands9. júní 2026






