65 - Ancien Régime: Frakkland á barmi byltingar
Franska byltingin hófst árið 1789 og er hún jafnan talin á meðal merkustu atburða mannkynssögunnar. Byltingin varð til í umróti nýrra hugmynda í landi sem bar einkenni mikils félagslegs óréttlætis. Í þættinum í dag ræða Andri og Ólafur þetta samfélag sem stundum er kallað Ancien Régime - gamla stjórnin, með áherslu á síðasta franska Búrbónakonunginn, Loðvík XVI, en hann var tekinn af lífi af byltingarmönnum árið 1793.
Heitar umræður spunnust um endurskoðun sögunnar, um lögstéttarkerfið, skattkerfið og minningu konungsins og drottningarinnar Marie Antoinette. Var Ancien Régime eins gegnumsýrt af spillingu og óstjórn eins og byltingarmenn höfðu uppi, eða var byltingin óumflýjanleg afleiðing óskilvirks og óréttláts samfélags?
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Fleiri þættir af Söguskoðun
- 128 - Suðurríkin, þrælahaldið og aðdragandi ameríska borgarastríðsins17. september 2026
- 127 - Rússneska borgarastyrjöldin: Hverjir voru hvítliðar?28. ágúst 2026
- 126 - Hannibal, Karþagó og Púnverjastríðin17. júlí 2026
- 125 - Hugmyndin um réttlátt stríð7. júlí 2026
- 124 - Ríki, vald og realismi: Hvernig haga ríki sér?24. júní 2026
- 123 - Skálholt: Hinn forni höfuðstaður Íslands9. júní 2026






