26 - Lýðræði og fasismi í Japan
Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði með gríðarlegum hörmungum í Japan, Kóreu, Kína, Suð-Austur Asíu og á Kyrrahafi.
Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um sögu Japans á millistríðsárunum frá þáttöku Japana í fyrri heimsstyrjöld þar til annað stríð Japana og Kínverja braust út árið 1937.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið hér.
Fleiri þættir af Söguskoðun
- 128 - Suðurríkin, þrælahaldið og aðdragandi ameríska borgarastríðsins17. september 2026
- 127 - Rússneska borgarastyrjöldin: Hverjir voru hvítliðar?28. ágúst 2026
- 126 - Hannibal, Karþagó og Púnverjastríðin17. júlí 2026
- 125 - Hugmyndin um réttlátt stríð7. júlí 2026
- 124 - Ríki, vald og realismi: Hvernig haga ríki sér?24. júní 2026
- 123 - Skálholt: Hinn forni höfuðstaður Íslands9. júní 2026






