Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

Benedikt bókaútgáfa

Bókmenntir

Í Sólinni er rætt um bækur sem koma út hjá Benedikt bókaútgáfu. Höfundar lesa úr og segja frá verkum sínum og góðir gestir spjalla um þýddar bækur.

Höfundaspjall: Margrét Bjarnadóttir og Marta María Jónsdóttir

Margrét Bjarnadóttir og Marta María Jónsdóttir bera saman bækur sínar: Varkár og Fuglamál.

Ljóðastund til heiðurs Hannesi Péturssyni

Upptaka af ljóðastund til heiðurs Hannesi Péturssyni sem fram fór í Eddu 23. október. Tilefnið var að Hannes Pétursson (f. 1931) sendi nýlega frá sér sína tólftu ljóðabók, Hjá Leyningsvötnum. Fimm rithöfundar komu saman og heiðruðu stórskáldið með upplestri ljóða frá löngum ferli Hannesar og gerðu grein fyrir vali sínu 📖 Fram koma: Guðmundur Andri Thorsson Jón Kalman Stefánsson Karólína Rós Ólafsdóttir Valdimar Tómasson Þórdís Gísladóttir Við biðjumst velvirðingar á að hljóðið er ekki eins og best verður á kostið.

Höfundaspjall: Brynja Hjálms og María Elísabet

Brynja Hjálmsdóttir og María Elísabet Bragadóttir bera saman bækur sínar: Undir fögru skinni og Þúsund barna móðir!

Einfætta ballerínan: Inga Bjarnason ræðir við Hlín Agnarsdóttur

Nýr þáttur af Sólinni: Inga Bjarnason ræðir við Hlín Agnarsdóttur um endurminningabók sína, Einfætta ballerínan, og um lífið og listina. Bókin kemur út í byrjun nóvember . Endurminningar Ingu Bjarnason eru dásamlegur aldarspegill, í senn tragískur, fjörugur og fyndinn. Inga heillaðist snemma af leiklist og kom víða við í heimi leikhússins. Af fullri einlægni lýsir hún baráttu sinni við eigin takmörk, segir frá ástum og sorgum, sigrum og ósigrum – og leitar loks sátta við liðna tíð. Þar er fátt dregið undan.

Höfundaspjall: Kari Ósk og Karólína Rós

Höfundaspjall: Kari Ósk Grétudóttir og Karólína Rós Ólafsdóttir ræða um ljóðabækurnar þeirra, Undir þér jörðin og Lífskán.

Fríða Þorkelsdóttir ræðir Kæri fáviti eftir Virginie Despantes

Upptaka frá Sólarkvöldi í Skáldu 18. júní 2026. Einar Kári Jóhannsson ræðir við Fríðu Þorkelsdóttur um skáldsöguna Kæri fáviti eftir Virginie Despentes, í íslenskri þýðingu Kristínar Jónsdóttur. Um bókina: Þrjár ólíkar raddir segja frá – útskúfaður rithöfundur, þekkt leikkona og róttækur femínisti. Í gegnum tölvupóstsamskipti þeirra fáum við innlit í heim gegnsýrðum af kynbundinni valdbeitingu, afleiðingum #MeToo, fíkn, vináttu og leit að merkingu í heimi sem virðist oft vera að hrynja. Snjöll samtímasaga frá einum áhrifamesta höfundi Frakklands.

Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman um Þyngsta frumefnið

Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman Stefánsson um fimmtu ljóðabók hans; Þyngsta frumefnið. Upptakan var gerð fyrir framan fullan sal af fólki í Skáldu bókabúð 5. nóvember 2025.

Sigríður Hagalín ræðir Vegur allrar veraldar

Einar Kári Jóhannsson ræðir við Sigríði Hagalín Björnsdóttur um skáldsöguna Vegur allrar veraldar - Skálkasaga, sem er sjálfstætt framhald af Hamingja þessa heims - Riddarasaga. Þau ræða söguna, sagnaritun, heimildir og söguleganskáldskap.

Dagur Hjartarson ræðir Frumbyrjur

Einar Kári Jóhannsson ræðir við Dag Hjartarson um skáldsöguna Frumbyrjur. Um bókina: Það er aðfangadagur og hjónin á Kölduhömrum búa sig undir jólahaldið. Handan áramóta eiga þau von á sínu fyrsta barni og spennan í kviðnum smitar andrúmsloftið. Snjórinn hleðst upp og vegurinn út úr firðinum hefur ekki enn verið ruddur. Þegar kýrin á bænum tekur sótt hrökkva dyr upp á gátt sem ekki verður lokað.

Kristín Svava Tómasdóttir ræðir Fröken Dúllu: Ævisögu Jóhönnu Knudsen

Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla: Ævisaga Jóhönnu Knudsen sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn hafa verið kallaðar umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar. En hver var Dúlla Knudsen?

Þér gæti líka líkað...