#27 - Gervigreind sem vinnufélagi framtíðarinnar?
Í þessum þætti fáum við til okkar þær Gyðu Kristjáns hjá Isavia og Þórdísi Jónu stofnanda Revera, mikla talsmenn gervigreindar. Þær eru báðar einstaklega orkumiklar, forvitnar og óhræddar við að prófa nýjar leiðir og deila með okkur sinni sýn á hvernig gervigreind getur hjálpað okkur að ná meiri árangri, bæði í vinnunni og lífinu almennt.
Við spjöllum um þær áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir þegar kemur að innleiðingu gervigreindar, hvað er helst að halda aftur af okkur og hvernig við getum nýtt tæknina til að vinna snjallara en ekki endilega meira. Þær segja okkur líka frá því hvernig þær sjálfar nota gervigreind í sínum daglegu störfum, verkefnum og jafnvel einkalífinu.
Þetta varð skemmtilegt og hressilegt tékk-inn fullt af hagnýtum ráðum, innblæstri og dæmum sem sýna að gervigreind er ekki bara eitthvað fyrir tæknifólk, heldur verkfæri sem getur hjálpað okkur öllum að gera meira af því sem skiptir máli.
Fleiri þættir af Tékk-inn með Helgu og Örnu
- #26 - Tékk-inn með Mannauði28. september 2026
- #25 - Vinnustaðir og geðrækt21. september 2026
- #25 - Vinnustaðir og geðrækt21. september 2026
- #24 - Vöxtur byrjar þar sem öryggið endar8. september 2026
- #23 - Herdís Pála Pálsdóttir - Sjálfsforysta24. ágúst 2026
- #22 - Anna Signý Guðbjörnsdóttir - "Þú ert ráðin þarna sem manneskja"15. júní 2026






