Þáttur um vinnustaðamenningu, leiðtogahlutverkið, stjórnun og hvernig meðvitund spilar inn í þetta allt saman.

Í þessum þætti fáum við til okkar þær Gyðu Kristjáns hjá Isavia og Þórdísi Jónu stofnanda Revera, mikla talsmenn gervigreindar. Þær eru báðar einstaklega orkumiklar, forvitnar og óhræddar við að prófa nýjar leiðir og deila með okkur sinni sýn á hvernig gervigreind getur hjálpað okkur að ná meiri árangri, bæði í vinnunni og lífinu almennt. Við spjöllum um þær áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir þegar kemur að innleiðingu gervigreindar, hvað er helst að halda aftur af okkur og hvernig við getum nýtt tæknina til að vinna snjallara en ekki endilega meira. Þær segja okkur líka frá því hvernig þær sjálfar nota gervigreind í sínum daglegu störfum, verkefnum og jafnvel einkalífinu. Þetta varð skemmtilegt og hressilegt tékk-inn fullt af hagnýtum ráðum, innblæstri og dæmum sem sýna að gervigreind er ekki bara eitthvað fyrir tæknifólk, heldur verkfæri sem getur hjálpað okkur öllum að gera meira af því sem skiptir máli.

Mannauðsdagurinn er á næsta leyti og af því tilefni sláum við til samstarfs við Mannauð, félag mannauðsfólks á Íslandi. Tékk-inn að þessu sinni er því með Adriönu Pétursdóttur sem er formaður félagsins en hún er einnig framkvæmdastjóri Mannauðs hjá Rio Tinto á Íslandi. Við fórum um víðan völl en hún segir okkur m.a. frá störfum sínum sem formaður Mannauðs og framkvæmdastjóri, hverjar hún telur áskoranir mannauðsfólks vera næstu árin og hverju við megum búast við á Mannauðsdaginn sjálfan.

Nú stendur Gulur september yfir þar sem viðfangsefnið er geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Af því tilefni buðum við Helgu Arnardóttur, ráðgjafa hjá Geðhjálp til okkar í tékk-inn. Helga þekkir vel inn á mikilvægi geðræktar og hvernig við getum í daglegu lífi stutt hvort annað ásamt því að hlúa að eigin geðheilsu. Skilningur okkar er sífellt að aukast um að vinnuveitendur og stjórnendur spila stórt hlutverk í að skapa vinnuumhverfi sem styður við andlega heilsu starfsfólks og mikilvægi þess að við látum okkur hvort annað varða. Við komum víða við í þættinum en samtalið varð einnig persónulegt á köflum þar sem við ræddum einnig eigin geðrækt.

Nú stendur Gulur september yfir þar sem viðfangsefnið er geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Af því tilefni buðum við Helgu Arnardóttur, ráðgjafa hjá Geðhjálp til okkar í tékk-inn. Helga þekkir vel inn á mikilvægi geðræktar og hvernig við getum í daglegu lífi stutt hvort annað ásamt því að hlúa að eigin geðheilsu. Skilningur okkar er sífellt að aukast um að vinnuveitendur og stjórnendur spila stórt hlutverk í að skapa vinnuumhverfi sem styður við andlega heilsu starfsfólks. og mikilvægi þess að við látum okkur hvort annað varða. Við komum víða við í þættinum en samtalið varð einnig persónulegt á köflum þar sem við ræddum einnig eigin geðrækt.

Þetta er persónulegur þáttur þar sem Helga ræðir síðustu mánuði í nýju starfi en hún tók nýlega við stjórnunarhlutverki hjá Isavia. Hún segir okkur frá því hvernig hún sér mannauðsstjórnunin nýtist í nýju hlutverki, áskoranirnar, hvað kemur á óvart og hvað varð til þess að hún tók stökkið.

Herdísi Pálu þarf vart að kynna fyrir fólki í mannauðsmálum og stjórnun. Hún er hafsjór af fróðleik og reynslu og margir myndu segja að hún sé einstaklega lunkin við að sjá hvernig vinnumarkaðurinn mun þróast og hvaða áherslur eru mikilvægar í framtíðinni. Í þessum þætti ræðum við m.a. um símenntun og mikilvægi sjálfsforystu fyrir einstaklinga. Við fundum það að við gátum átt þriggja tíma samtal um þessi málefni og fleiri en við erum ánægð að starta nýjum vetri á þessu skemmtilega samtali.

Í þessum þætti ræðum við við Önnu Signýju sem er framkvæmdastjóri Kolibri. Anna Signý er þaulreynd í að taka tékk-inn þar sem það er eitt af tólunum sem þau nota í hennar starfsumhverfi ásamt mörgum öðrum. Óhætt er að segja að Kolibri er fyrirtæki sem er ólíkt öðrum fyrirtækjum sem við höfum heyrt af og að nálgun þeirra á stjórnun er einstök. Þegar maður heyrir smá um hvernig starfið þeirra er skipulagt þá vakna svo margar spurningar og við leitumst við að svara þeim í þessum þætti. Ekki láta þennan þátt framhjá þér fara!

Helga Jóhanna er stofnandi Opus Futura sem er með nýja nálgun í ráðningum. Hún segir okkur frá lausninni og hvernig tæknin getur stutt okkur í þessu mikilvæga ferli sem ráðningar eru. Við fórum yfir mannlegu áskorarirnar sem oft fylgja og hvað mannauðsfólk og stjórnendur þurfa að vera vakandi fyrir hjá sjálfum sér. Á persónulegu nótunum fór hún yfir hvernig er að vera með nýsköpunarfyrirtæki og þær áskoranir sem hún hefur staðið frammi fyrir í þessu hraða tækniumhverfi.

Harpa Hödd er framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs hjá Eimskip. Það sem ekki öll vita er að Eimskip er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í yfir 20 löndum, í nokkrum heimsálfum. Harpa segir okkur frá þeim fjölmörgu verkefnum sem falla til á hennar sviði sem hefur nýlega kynnt nýja stefnu fyrirtækisins og eru í miðri innleiðingu á henni. Fyrirtækið er með öfluga leiðtogaþjálfun, arftakaáætlanir og leggur mikið upp úr jöfnum tækifærum kynjanna. Á persónulegum nótum segir hún okkur frá hvernig hún hefur vaxið í starfi, talar um mikilvægi þess að grípa tækifærin og jafnvel skapa þau sjálf. Ekki missa af þessum fróðlega og áhugaverða þætti.

Brynjar Már er mannauðsstjóri Isavia er viðmælandi ékk-inn í þessum þætti og segir okkur frá því hvaða leiðir Isavia hefur farið við að vinna að uppbyggilegri menningu innan fyrirtækisins. Það er margt sem þarf að spila saman þegar kemur að því að breyta menningu í svo stóru og fjölbreyttu fyrirtæki og þá þarf þolinmæðin, ákveðnin og seiglan að vera til staðar. Þetta er fróðlegur þáttur og Brynjar kann svo sannarlega að koma vel fyrir sig orði þegar hann segirokkur frá því helsta.



