#31 - Áhorfendur halda með þér
Þú stendur upp, hjartað hamast og allt í einu virðist heilinn hafa gleymt öllu sem þú ætlaðir að segja. Ræðukvíði er eitthvað sem ótrúlega mörg okkar þekkja, líka fólk sem hefur áratuga reynslu af því að standa á sviði.
Gestur okkar í þessum þætti er Gunnar Hansson, leikari og útvarpsmaður, sem hefur staðið fyrir framan áhorfendur í nær 30 ár. Við tölum um hvað gerist í okkur þegar við verðum stressuð, hvers vegna hræðslan við hræðsluna getur orðið stærsta hindrunin og hvað raunverulega hjálpar þegar við þurfum að stíga fram.
Gunnar segir okkur meðal annars frá því þegar hann fraus á sviði, hvers vegna hann treystir á stikkorð og af hverju við ættum kannski að hætta að hugsa um áhorfendur sem ógn.
Því þegar allt kemur til alls eru þeir yfirleitt á okkar bandi.
Fleiri þættir af Tékk-inn með Helgu og Örnu
- #30 "From asshole to human being"2. nóvember 2026
- #29 - Samstarfsþáttur Tékk-inn & Gervigreindarklúbbsins29. október 2026
- #28 - Teymisþjálfarinn19. október 2026
- #28 - Teymisþjálfarinn19. október 2026
- #27 - Gervigreind sem vinnufélagi framtíðarinnar?5. október 2026
- #26 - Tékk-inn með Mannauði28. september 2026






