Kaup risans Símans á vinsælum fjölmiðlum

· Fréttir

Fyrirhuguð kaup Símans á vinsælum fjölmiðlum eins og Vísi.is og Bylgjunni af Sýn hafa vakið athygli. Síminn hefur á síðustu tveimur árum keypt mörg fyrirtæki á auglýsinga- og fjártæknimarkaði og vaxið talsvert.

Stærsti hluthafi Símans er fjárfestingarfélagið Stoðir sem á sér rúmlega 50 ára langa sögu í ólíkum myndum, meðal annars sem FL Group á árunum fyrir bankahrunið 2008. Meðal hluthafa Stoða eru nokkrir af þekktari fjárfestum landsins.

Stoðir er einn stærsti einkafjárfestirinn á íslenskum hlutabréfamarkaði í dag og hyggur á enn meiri vöxt.

Rætt er við Snorra Jakobsson um fyrirhuguð kaup Símans á þessum eignum af Sýn og vöxt fyrirtækisins.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Þetta helst

Úr hlaðvarpinu

Þetta helst

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Þetta helst